top of page
  • Writer's pictureJón Steinar Gunnlaugsson

Þáttur sem ekki mátti sýna

Nú er kominn á netið Kastljósþáttur sem yfirstjórn RÚV vildi hindra sýningar á með orðum um að fréttamaðurinn sem gerði þættina, María Sigrún Hilmarsdóttir, væri ekki til þess hæf að gera svona fréttaþætti. Henni bæri frekar að sinna starfi þular sem segði fréttir án þess að stjórna gerð þeirra. Eftir að málið hafði komið til umfjöllunar opinberlega komst RÚV ekki hjá því að setja þáttinn á dagskrá Kastljóss og var hann sýndur 6. maí.

 

Og hvað kemur í ljós? Um er að ræða lóðir í Reykjavík sem hafa hýst bensínstöðvar olíufélaganna undanfarin ár á grundvelli lóðarleigusamninga við Reykjavíkurborg til ákveðins tíma. Leigutími a.m.k 5 þessara leigusamninga er útrunninn. Fái leigutakar ekki samninga um framlengingu þeirra til óbreyttrar nýtingar ber þeim skylda til að afhenda lóðirnar til eiganda þeirra, leigusalans Reykjavíkurborgar. Þá er þeim auðvitað skylt að fjarlægja öll mannvirki á lóðunum, svo sem hús sín og eldsneytistanka sem þar eru í jörðu, að unfanskildum 5 tilvikum þar sem eru ákvæði um svonefndan uppkaupsrétt, þ.e. að leigusala beri að greiða leigutaka matsverð nannvirkja á viðkomandi lóð.

 

Við brottför olíufélaganna fær leigusalinn, Reykjavíkurborg, lóðirnar í hendur. Þegar samningsbundinn leigutími fasteignar rennur út gengur fasteignin auðvitað aftur til leigusalans án þess að fyrri leigutaki njóti nokkurs forgangs til áframhaldandi leigu, hvort sem er til óbreyttrar nýtingar eða nýtingar í samræmi við nýtt skipulag sem Reykjavíkurborg kann að gera. Getur borgin þá nýtt þær til skipulags undir íbúðabyggð sem gefur af sér leigugjald sem mun nema milljörðum króna. Við slíka nýtingu lóðanna ber borginni auðvitað skylda til að bjóða þær út og gefa öðrum aðilum, sem kunna að vilja nýta þær að fengnu nýju skipulagi, t.d. til íbúðabygginga, kost á að gera tilboð í byggingarréttinn á lóðunum.

 

Í fréttaskýringarþætti Maríu Sigrúnar, sem RÚV var þvingað til að sýna, kom í ljós ótrúleg ráðstöfun borgarinnar á þessum lóðum. Fyrri leigutakar, olíufélögin, fengu lóðirnar afhentar endurgjaldslaust undir íbúðabyggð, án þess að öðrum væri gefinn kostur á að bjóða í þær. Með þessu háttalagi voru félögunum afhent verðmæti úr hendi borgarinnar sem nema milljörðum króna.


Þetta er ekkert annað en rakið hneyksli. Er fjallað um þessa atburði á framúrskarandi upplýsandi og hlutlausan hátt í þætti Maríu Sigrúnar. M.a er þar sýnt ítarlegt viðtal við fyrrverandi borgarstjóra og honum gefinn kostur á að skýra út háttsemi þáverandi meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Það er ótrúlegt að stjórnendur RÚV skuli ekki hafa viljað sýna þessa þætti. Er það virkilega tilfellið að þessi ríkisstofnun hafi viljað leyna þessari hneykslanlegu málsmeðferð fyrir almenningi?

 

Það er vitaskuld refsiverð háttsemi ef opinberir aðilar afhenda einkaaðilum verðmæti sín, eða öllu heldur almennings, án þess að fá fyrir þau viðeigandi verðmæti. Einhvern tíma hefur farið fram opinber rannsókn af minna tilefni.


Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður

bottom of page