top of page
  • Writer's pictureJón Steinar Gunnlaugsson

Árás á fullveldi Íslands


Mannréttindadómstóll Evrópu (mynd af heimasíðu dómstólsins)

Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu í málinu, sem varðar skipun dómara í Landsrétt, er ekkert minna en árás á fullveldi Íslands. Um það ættum við öll að geta verið sammála, hvort sem við í orðaskakinu innanlands „höldum með“ dómsmálaráðherra eða stjórnarmeirihlutanum eða þeim sem vilja veita ríkisstjórninni aðhald og andstöðu. Þá geng ég út frá því að Íslendingar séu einhuga um að vilja varðveita fullveldi landsins.


Lýsa má aðild hinna íslensku valdastofnana nokkurn veginn svona:


1. Dómsmálaráðherra lagði tillögu sína um skipun dómaranna 15 fyrir Alþingi svo sem ráðherranum bar. Deilt er um hvort ráðherrann hafi sinnt rannsóknarskyldu þegar hann gerði tillögu sína.


2. Alþingi samþykkti tillögu ráðherra um skipun dómaranna. Deilt er um hvort heimilt hafi verið að greiða atkvæði um tillöguna í einu lagi eða hvort bera þurfti hana upp þannig að atkvæði yrðu greidd um hvern umsækjendanna um sig.


3. Forseti Íslands staðfesti skipun dómaranna 15.


4. Hæstiréttur Íslands komst að þeirri niðurstöðu að annmarkar sem verið hefðu á skipunarferlinum hefðu ekki þær afleiðingar að skipun þeirra fjögurra dómara, sem ráðherra gerði tillögu um en ekki höfðu verið á lista matsnefndar, teldist ógild (dómur 24. maí 2018 í máli nr. 10/2018). Þeir sætu í embættum sínum þar til þeim yrði vikið úr þeim með dómi, eins og stjórnarskráin kveður á um.


Þar með var þessum ágreiningi lokið.


Þá stígur Mannréttindadómstóll Evrópu inn á sviðið. Meirihluti hans telur að dómararnir fjórir hafi ekki verið löglega skipaðir. Í því felist mannréttindabrot á manni sem sakaður hafði verið um refsivert brot og dæmdur fyrir það, m.a. af einum hinna fjögurra dómara, með dómi sem Hæstiréttur síðan hafði staðfest. MDE taldi ekki að þetta hefði leitt til þess að málsmeðferðin gegn manninum hefði að efni til verið ófullnægjandi, þ.e. að hann hefði ekki notið þeirra réttinda sem honum bar við málsmeðferðina. Samt hefði verið brotinn á honum réttur vegna annmarka á skipun eins dómaranna.


Íslendingar þurfa að skilja að hér er á ferðinni umbúðalaus árás á fullveldi Íslands. Svo sem að framan er lýst hafa þær stofnanir hér innanlands sem um ræðir komist að niðurstöðu um að dómarinn sé réttilega skipaður í embætti með þeim hætti að honum verði ekki komið úr því nema með dómi. Þær hafa líka komist að þeirri niðurstöðu, sem MDE reyndar véfengir ekki, að maðurinn hafi hlotið réttláta málsmeðferð. Hvað er dómurinn þá að vilja? Hvað kemur honum við skipun dómarans sem allar íslenskar valdastofnanir hafa staðfest að sé gild?


Ástæða er til að skora á þátttakendur í málskrúði daganna að sitja nú á sér og taka höndum saman um að hrinda þessari aðför sem Ísland hefur nú sætt frá erlendri stofnun sem blygðunarlaust sækir sér vald sem hún fer alls ekki með. Þeir ættu að sýna stærð með því að sameinast til varnar fyrir fullveldi landsins í stað þess að hjakka í fari síður merkilegra deilna innanlands.


Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður

bottom of page